Gistihús Hólmavíkur hóf starfsemi á vordögum 2020. Gistihúsið samanstendur af 10 tveggja manna herbergjum.
Gistihús Hólmavíkur býður upp á notalega veitingastofu á annarri hæð hússins og frábæran útipall þar sem má sitja og horfa út á höfnina í Hólmavíkurlogninu.
Gistihúsið er einnig með bistro/kaffihús. Hægt er að fá kaffi og kaffimeðlæti.