Margir muna eftir frækilegri kajaksiglingu Veigu Grétarsdóttur rangsælis í kringum Ísland á móti straumnum sumarið 2019. Nú hefur Veiga lagt í enn stærra verkefni, hún réri í sumar frá Ísafirði, austur á Seyðisfjörð og ætlar svo þaðan í enn lengri ferð á kajaknum. Veiga kom við á Ströndum í sumar og hjálpaði þar heimafólki að hreinsa rusl úr svokallaðri Hörsvík en markmið ferðarinnar er að vekja athygli á rusli á ströndum landsins okkar og annarra landa. Kristín Einarsdóttir hitti Veigu og fékk hana til að segja frá þessu einstaka kajakævintýri.
Kristín Einarsdóttir þjóðfræðingur á Ströndum hefur umsjón með innslögum í Mannlega þáttinn á Rás 1.
Í þessum innslögum hefur hún tekið hátt í þriðja hundrað viðtöl við Strandafólk um ýmis efni, allt frá vangaveltum um kynlíf bænda fyrr á öldum, hestamennsku, hundatamningu, músahræðslu og margt fleira.