Íslandsmeistaramót í hrútadómum
Íslandsmót í hrútadómum 2022, kaffihlaðborð & kjötsúpa á Sauðfjársetri á Ströndum sunnudaginn 21. ágúst kl. 14:00.
Aðgangur að hátíðinni og sýningum Sauðfjársetursins er ókeypis í tilefni dagsins.
Loksins, loksins ætlum við halda þessa stórkostlegu keppni í hrútadómum, aftur eftir tveggja ára hlé. Það verður að venju bæði keppt í flokki vanra og óvanra hrútaþuklara. Vegleg verðlaun í boði í báðum flokkum.
kjötsúpa í hádeginu og veglegt kaffihlaðborð yfir daginn.
Uppbyggingarsjóður Vestfjarða og Safnasjóður styrkja Sauðfjársetur á Ströndum á árinu 2022.