Æðarvarpið á Orrustutanga
Kirkjuból á Ströndum - www.strandir.is/kirkjubol
( 451-3474 - kirkjubol@strandir.is
 

Æðarfuglinn

Orrustutangi

Fréttir af fuglalífinu

Tenglar og myndir


Orrustutangi

Æðarvarpið á Kirkjubóli er einkum í Orrustutanga sem félagsheimilið Sævangur stendur á. Önnur og yngri nöfn á Orrustutanga eru Birgistangi, Ormstangi og Kirkjubólstangi, en Orrustutangi er elsta nafnið og það sem íbúar á Kirkjubóli nota. Það er líka dálítið æðarvarp í Kirkjuskerinu sem er á Bæjarvíkinni milli Sævangs og Kirkjubóls og er hægt að ganga út í skerið þurrum fótum á fjöru. Á Innri-Tanga innan við Orrustutanga, þar sem er einkennilegt eggjagrjót, eru einnig nokkur æðarhreiður og töluvert af kríu og með ströndinni alla leið að Miðdalsá.

Á Innri-Tanga er sérkennilegt egghvasst grjót

Frá Kirkjubóli var róið til fiskjar frá því snemma á öldum og fram á 20. öldina. Höfðu margir þar uppsátur á vorin, enda voru afar góð hrognkelsamið fram af bænum. Gert var út frá Orrustutanganum og þar stóð verbúðarhús sem búið var í um tíma á fyrstu áratugum 20. aldar. Þar bjó faðir Gísla Jónatanssonar í Naustavík og hans fjölskylda í húsi sem kallað var Tangahúsið og sjást tóftir þess greinilega. Þar var einnig gamalt íshús og víða má sjá ummerki og tóftir eftir hróf eða naust þar sem bátar voru geymdir á þurru landi.  

 

Séð í áttina að Innri-Tanga, Heiðarbær í baksýn

Í víkinni innan við Orrustutanga sem er í baksýn

Tóftirnar af Tangahúsinu í Orrustutanga

Fremst á Orrustutanga stóð einnig fjárrétt Tungusveitunga frá því laust fyrir aldamótin 1900, hlaðin úr grjóti. Áður var engin rétt í sveitinni, nema frammi í Arnkötludal. Þangað var fé rekið af bæjunum fyrir innan Húsavíkurkleif, en þeir sem bjuggu í Miðdalnum og utar við Steingrímsfjörðinn smöluðu yfir í Steinadalsrétt í Kollafirði. Enn sést móta fyrir steinum úr neðstu hleðsluröðinni í réttinni á Orrustutanganum, en Vegagerðin tók mest allt grjótið og notaði í varnargarða við gömlu Miðdalsárbrúna um miðja 20. öldina. Hætt var að nota réttina í Orrustutanga árið 1929 og hlaðin ný úr torfi við Bæjarvíkina.

Image

Æðarkolla í grjótinu þar sem réttin var í Orrustutanga

Um það bil 600-700 metra frá landi, utan við Orrustutanga og Hundatanga við sunnanverða Bæjarvíkina er flæðisker sem heitir Sesselja. Ljót saga er um hvernig nafnið kom til. Fyrir langa löngu sendu sveitaryfirvöld á Selströnd menn á báti yfir Steingrímsfjörð að Kirkjubóli með sveitarómaga, telpu sem hét Sesselja. Hreppsnefndin á Selströnd taldi að hún ætti að vera á framfæri Tungusveitar. Yfirvöld í Tungusveit neituðu hins vegar að taka á móti telpunni og skipuðu mönnunum með harðri hendi að fara með hana til baka og ráku þá út í bátinn aftur. Þegar þeir voru komnir nokkuð frá landi fara þeir að ræða vandann sem þeir eru komnir í, að hafa ekki getað skilið stelpuna eftir. Ekki þorðu þeir að reyna aftur að koma stúlkunni í land og ekki heldur að koma með hana til baka. Taka þeir þá eftir skerinu rétt hjá bátnum og ákveða að setja telpuna á skerið og skilja hana þar eftir. Með aðfallinu fór síðan skerið í kaf og drukknaði telpan þar.

Image

Fuglahræðan Abel - Kirkjuskerið í baksýn

 

Hver einn bær á sína sögu, sigurljóð og raunabögu ...

Vefur: SÖGUSMIÐJAN
Opnaður í júní 2007