Ferðaþjónustan

Kirkjuból
510 Hólmavík

- fjölskylduvæn
ferðaþjónusta

 
Aðalsíða

Gistihúsið

Þjónusta

Verð

Pantanir

Kirkjuból

Útivist

Í fjörunni

Fuglarnir

Myndir

Tenglar

Umhverfisstefna


 
Vorið á Ströndum ...

... er heilmikil upplifun og ævintýri. Snjóa leysir nokkuð seinna á Ströndum en á suðlægari breiddargráðum. Þess vegna njóta Strandamenn fjölda blíðviðrisdaga að vorlagi þegar enn er hægt að fara á gönguskíðum upp um fjöll og firnindi án þess að hafa áhyggjur af yfirvofandi stórhríð eða illviðrum. Snjósleðamenn leita líka norður á bóginn í apríl og maí í sömu erindagjörðum og taka margir stefnuna á Drangajökul frá Steingrímsfjarðarheiði.

Fyrsta hreiður vorsins - tjaldurinn búinn að verpa í apríl 2003

Fuglalífið við Steingrímsfjörð ...

...  er fjölskrúðugt þegar líða tekur á vorið. Krían kemur frá veturstöðvunum í Afríku þann 10. maí, en þá er hrafninn löngu búinn að verpa og lagstur í laupinn. Tjaldurinn verpir líka í vegkantinn snemma í maí og þrösturinn í garðinn. Áhugamenn um fugla hafa nóg við að vera við að fylgjast með fuglalífinu og eru hvattir til að sýna aðgæslu og ganga vel um. Á Kirkjubóli er lítilsháttar æðarvarp og er það aðgengilegt ferðafólk - sjá www.strandir.is/kollan. Á jörðinni er einnig teistu- og kríuvarp. 

Um svipað leyti og krían ...

... kemur til landsins hefst sauðburður á Ströndum. Þegar líður fram í maí leika lömbin við hvern sinn fingur eftir að bændur sleppa þeim úr húsi. Á Kirkjubóli er ekki stundaður hefðbundinn búskapur, en aðrir bændur á Ströndum eru á kafi í sauðfjárræktinni sem stendur í miklum blóma í héraðinu. Ferðaþjónustan getur haft milligöngu um heimsókn í fjárhús ef áhugi er á.
 

       

Kirkjuból á Facebook

Strandir á vefnum:

strandir.is

vestfirdir.is

Skemmtilegar sögusýningar:

Galdrasýning á Ströndum

 Sauðfjársetur
á Ströndum

Hólmavík
12 km

Opið allt árið:
vetur
sumar
vor
haust

 Ferðaþjónustan Kirkjuból 
Sími: 451-3474 – Netfang: kirkjubol@strandir.is

© Vefsíðugerð: Sögusmiðjan - síðast uppfært nóv. 2009