|
|
... er ógleymanlegur þeim sem hefur af honum náin kynni. Eða er kannski ekki eftirminnilegt ævintýr að festa farskjótann í skafli norður á Ströndum og komast hvorki lönd né strönd? Reyndar er þjóðleiðin að Kirkjubóli suður Strandasýslu mokuð af Vegagerðinni sex daga vikunnar svo það er tiltölulega lítil hætta á að menn geti notið þess lengi að vera veðurtepptir. En það er oftast hægt að finna skafl til að glíma við. Og að kvöldlagi í stjörnubjörtu veðri þegar norðurljósin leika sér á himninum er það gaman.
Börnin myndu örugglega skemmta sér vel ... ... í helgarferð norður á Strandir að vetrarlagi. Slík reisa
væri tilbreyting sem talandi er um. Smá frí frá
daglega amstrinu, skólanum og rútínunni í fjölskyldulífinu. Yfirleitt er
nægur
snjór til að hnoða snjókarl, grafa snjóhús og göng, renna sér á þotu
og skreppa á gönguskíði.
Fyrir gönguskíðamenn ... ... er svæðið líka býsna skemmtilegt
og yfir veturinn eru
stundum mót fyrir skíðagöngugarpa á Ströndum. Fjölmargir heimamenn
iðka þessa íþrótt og hafa gaman af. Síaukinn fjöldi sækir í ... ... jeppa- og snjósleðaferðir
norður á Strandir þegar líða tekur á
vorið og ekki er annað að sjá en fólkið skemmti sér vel. Ef
farið er með gát er svæðið heppilegt fyrir slík ævintýri og hægt að velja úr skemmtilegum leiðum.
Strandir eru líka staðurinn ... ... til að dvelja á að vetrarlagi við
skapandi störf og fræðagrúsk. Friðurinn og róin eru nákvæmlega jafn
mikil og menn helst kjósa.
|
Strandir á vefnum: Skemmtilegar sögusýningar:
Hólmavík |
|
Ferðaþjónustan Kirkjuból © Vefsíðugerð: Sögusmiðjan - síðast uppfærð nóv. 2009 |