Ferðaþjónustan

Kirkjuból
510 Hólmavík

- fjölskylduvæn
ferðaþjónusta

  
Aðalsíða

Gistihúsið

Þjónusta

Verð

Pantanir

Kirkjuból

Útivist

Í fjörunni

Fuglarnir

Myndir

Tenglar

Umhverfisstefna


   
Útivist og gönguferðir

Á Ströndum gefst fólki færi á að kynnast náttúrunni náið, rölta um merktar og ómerktar gönguleiðir með áttavita og nesti. Útivistarfólk hefur nægt rými til að vera eitt með sjálfu sér og njóta kyrrðarinnar sem svo sannarlega er nóg af. 

Á toppnum eftir stutta gönguferð eftir merktri gönguleið

Gefin hafa verið út göngukort með merktum göngu- og reiðleiðum á Ströndum og Vestfjörðum öllum. Hægt er að nálgast þau á Upplýsingamiðstöðinni á Hólmavík eða í vefverslun Strandagaldurs og öllum betri viðkomustöðum ferðamanna í sýslunni.

Merkt gönguleið er á Kirkjubóli upp á Kirkjubólsfjall, 4,8 km hringur, þægilegur fyrir alla fjölskylduna. Gefið hefur verið út kort um leiðina og útivistarsvæðið á Kirkjubóli. 

Fuglalíf

Í fjörunni er ýmislegt fleira að finna en rekadrumba og skeljar. Fuglalíf við Steingrímsfjörð er fjölbreytt og sú upplifun að finna hreiður getur verið einstök fyrir börnin. 

Teistuhreiður í klettavegg

Á Kirkjubóli er lítils háttar æðarvarp á vorin sem leyfilegt er að skoða og ganga varlega um. Þar er líka talsvert kríuvarp og teistuvarp sem gaman er að fylgjast með. Tjaldurinn verpir í vegkantinum og þrösturinn heima við hús. 

Teistuungar í kassa - tilraunaverkefni fuglafræðinga

Selir á steini

Á haustin má stundum sjá seli flatmaga á skerjum við Kirkjuból. Þeir eru forvitnir og fylgjast vel með mannaferðum í landi. Stundum elta þeir þá sem rölta eftir fjörunni.


Berjaferðir

Berjaferðir er skemmtun sem er upplögð fyrir fjölskyldufólk. Ágæt berjalönd eru víða í héraðinu, t.d. í Þiðriksvalladal við Hólmavík. Fjölmargir leggja leið sína á Strandir í helgarferðir á haustin, tína ber og njóta lífsins.
 

Göngur og réttir

Smalamennskur eru eitt af einkennum haustsins og sveitalífsins. Kirkjubólsrétt stendur í landi Kirkjubóls og þar er réttað á hverju hausti. Þeir sem áhuga hafa ættu að geta komist í smalamennsku og á Laugarhóli í Bjarnarfirði er réttarball á hverju hausti.

 

  

Kirkjuból á Facebook

Strandir á vefnum:

strandir.is

vestfirdir.is

Skemmtilegar sögusýningar:

Galdrasýning á Ströndum

 Sauðfjársetur
á Ströndum

Hólmavík
12 km

Opið allt árið:
vetur
sumar
vor
haust

 Ferðaþjónustan Kirkjuból 
Sími: 451-3474 – Netfang: kirkjubol@strandir.is 

© Vefsíðugerð: Sögusmiðjan - síðast uppfærð nóv. 2009