Advertisement
JJ | 19/07 2007 | 22:49
Síldarverksmiðjan á Eyri við Ingólfsfjörð PDF Prenta Tölvupóstur
Eyri
Ein af perlum Árneshrepps sem ferðamenn hafa mjög gaman af að heimsækja er Eyri við Ingólfsfjörð. Þar var um tíma á 20. öldinni blómleg síldarvinnsla og er afar sérstakt að koma þar og sjá yfirgefnar verksmiðjubyggingarnar sem eru í allmikilli niðurníðslu. Akvegur sem mætti gjarnan vera töluvert betri, en er þó fær öllum bílum, liggur frá Melum í Árneshreppi yfir að Eyri, en jeppar komast síðan alla leið í Ófeigsfjörð. Fréttaritari strandir.is skellti sér í skoðunarferð að Eyri á dögunum og smellti af nokkrum myndum.

Eftir því sem fréttaritari veit best var síldarsöltun á Eyri á árabilinu 1916-1919, en lagðist þá af þar eins og víðar í framhaldi af krakkinu mikla, þegar síldarsöltun landsmanna fór á höfuðið að heita mátti á einu bretti. Á þessu blómaskeiði voru líklega einar fimm síldarsöltunarstöðvar við Ingólfsfjörð.

Aftur var söltuð síld á Eyri frá því um 1930 og lítil síldarbræðsla var síðan byggð um 1936. Síðan var býsna stór bræðsla reist innarlega á eyrinni á heimsstyrjaldarárunum og starfrækt til 1952. Seinna var starfrækt þar lítil rækjuverksmiðja í fáein ár. Eyri fór í eyði (ef hægt er að nota það orð) árið 1971, en þar eru fyrir utan verksmiðjuhúsin nokkur íbúðarhús sem er viðhaldið og notuð sem sumardvalarstaðir.

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Eyri við Ingólfsfjörð - Ljósm. Jón Jónsson

Advertisement