Um næstu helgi hefst sala kvikmyndarinnar Fjallaferðir í Árneshreppi á Ströndum en myndin hefur verið í vinnslu undanfarin ár hjá Pálma Guðmundssyni frá Bæ og Vilhjálmi Knudsen kvikmyndagerðarmanni. Upphaflega stóð til að myndin yrði tilbúin fyrir einu ári en af ýmsum orsökum hefur það dregist þar til nú. Myndin er 117 mínútur að lengd og skiptist niður í fimmtán efnisþætti sem flestir eru um gönguleiðir í hreppnum. Vandað er til vinnslunnar og er m.a. að finna kort af öllum gönguleiðum sem fjallað er um í myndinni sem fæst bæði á DVD diski og á VHS myndbandi. Pálmi er höfundur myndefnis og leiðangursstjóri í ferðunum.
Myndin verður til sölu hjá stjórnarmönnum félags Árneshreppsbúa og einnig hjá umboðsmönnum víðsvegar um landið. Verð myndarinnar er 3.500 krónur.